Sunday, October 14, 2012

Homecoming Week!

Nú er Homecoming vika liðin! Homecoming er eitthvað svona ekta sem amerískir skólar gera. Þetta er svipað og árshátíðarvika í grunnskólum ef ég á að bera þetta saman við eitthvað. Fyrir hvert Homecomming er ákveðið þema. Þemað fyrir þetta ár var Farytale. Hver árgangur ákveður svo sitt Farytale þema. Þessi vika var æðisleg og hérna kemur smá frásögn fyrir áhugasama!

Á mánudeginum var þemað fyrir daginn SuperHeroDay. Eins og alltaf eru það sumir sem taka þetta alla leið og sumir sem gera bara alls ekkert. Ég var þarna mitt á milli. Homecoming vika snýst svo um að fá stig. Freshments, sophtmores, juniors og seniors eru í keppni. Þannig maður fékk stig fyrir að klæða sig upp fyrir hvert þema. Skóladagurinn var samt bara frekar venjulegur, en kennararnir leyfðu samt smá tjill og svona gaman.  Eftir skóla var blakleikur. Þetta var sérstakur blakleikur kallaður Pink-Out. Vorum að safna pening fyrir brjóstkrabbamein og voru alls konar vinningar og svona í boði og margir margir að horfa á.
Super Hero Day


Ugly Sweater
Þemað fyrir þriðjudag var UglySweaterDay+UglyHatDay. Mörg stig í hús fyrir Senior þar sem margir mættu í ljótum peysum. Eftir skólann var blakæfing og svo voru svokallaðir Leikarnir. Þeir voru á fótboltavellinum og voru alls konar þrautir. Eating contest, pokahlaup, reipitog, kasta eggi á milli án þess að það detti og svo framvegis. Svo var endað á Powderpuff Football sem ég tók þátt í. Þetta er bara eins og amerískur fótbolti nema stelpuútgáfan og það má ekki tækla eða neitt þannig. Við unnum fótboltann sem var mjög gaman!

Powderpuff Football
Miðvikudagsþemað var bara að klæða sig fínt. Þá mættu flestir í sínu fínasta, margar stelpurnar í Prom kjólnum sínum og strákar í jakkafötum og svona. Skóladagurinn bara venjulegur nánast og svo blakæfing eftir skóla. Eftir æfingu fór ég með þremur stelpum á Pizza Hut að borða og svo vorum við saman allt kvoldið. Rúntuðum og horfðum svo á mynd og eitthvað kosyheit.

Skreyta ganginn
Fimmtudagsþemað var svo að hver árgangur klæðir sig í þemað sem það valdi. Við Senior völdum Peter Pan og áttu við þá að mæta í búningum sem tengist því. Hinir árgangarnir voru svo með Shrek, Alice in Wonderland og Mjallhvít og dvergarnir sjö. Eftir hádegi á þessum degi voru engir tímar og við fengum tíma til að skreyta ganginn okkar og gera svokallaðan Float sem verður svo notaður í semí skrúðgöngu daginn eftir. Við skreyttum ganginn okkar í þema Peter Pan og hinir skreyttu í sitt þema. Svo er dómnefnd sem velur flottasta ganginn og þá bætast stigin við ef gangurinn er flottur. Við vorum þarna að skreyta og hengja upp alveg til klukkan 5, því ég þurfti að fara því það var blakleikur. Þetta kvöld keppti ég með báðum liðunum, varsity og JV. Þetta var síðasti leikur JV og við unnum, loksins unnum við leik! Með varsity unnum við ekki en það var samt sem áður gaman að spila með þeim. Þetta kvöld var svo einnig Senior Night sem gengur út á það að Juniors segja eitthvað fallegt um Senior stelpurnar. Það var ein í einu sem talaði um eina manneksju allt voða væmið og sumar fóru að gráta. Einum of væmið fyrir mig haha en svo fengum við lítinn pakka frá þeim líka. Eftir leikinn þá opnuðum við pakkana og allar fengu eitthvað við þeirra hæfi. Ég fekk lítinn bandarískan fána, fullt af nammi og svo blakboolta áritaðann frá liðinu. Svo voru plaköt hengd upp fyrir hver. Þetta var mjög gaman þrátt fyrir hvað þetta var væmið á tímabili. Þegar ég kom heim beið mín pakki frá yndislegu fjölskyldu minni heima  með nammi og harðfisk. Jane og Joel fannst fiskurinn mjög góður þrátt fyrir alveg yfirdrifandi mikla lykt eins og flestir vita að er af harðfiski.

Plagatið sem ég fekk
Skreyta skreyta
Föstudagsþemað var Spirit. Litir skólans eru rauður og hvítur þannig maður átti bara að klæða sig í þeim litum. Ekki of erfitt þema. Eftir hádegi var einnig engir tímar og í íþróttasalnum smá dagskrá. Þar voru fleiri keppnir þar sem hægt var að næla sér í stig. Það var Dance-Off þar sem valið fólk átti að dansa í 1 mínótu við eitthvað random lag. Það var fyndið að sjá það, frekar vandræðanlegt fyrir suma. Svo kepptu strákarnir í blaki og við unnum það! Klappstýrur og hljómsveitin voru á staðnum og svona skemmtiheit. Eftir þetta var skrúðganga sem öllum float-unum sem við vorum búin að gera.  Ég var á svokölluðum Homecoming-court Float þar sem fólk sem var kosið til að vera kanski homecoming drottining og kóngur voru. Það er hefð að afs skiptineminn sé þar líka. Þannig við keyrðum um bæinn í smá tíma. Um kvöldið var svo fótboltaleikur eins og vanalega, mikil stemming og gaman. Við unnum leikinn og erum komin í úrslit. Eftir leikinn var pitsa-night og vorum við þar í góðum fíling þangað til ég fór heim.

Ballið
Laugadagurinn var svo dagurinn þegar Homecoming ballið var! Ég gerði mig til með nokkrum stelpum úr bekknum og við fórum svo út að borða á stað sem heitir Uno í Madison. Mjög góður matur og skemmtilegt að fara svona fínt út að borða öll saman. Eftir matinn beið okkar ballið. Ballið minnti mig helst á grunnskólaball, haldið í skólanum, sumir að dansa sumir ekki og svona. En  þrátt fyrir það var mjög gaman, ég náði að dansa, tók hælana fljótt af og dansaði á táslunum. Cody og Kasy voru valin Homecoming queen og king, ég átti því miður ekki séns á að vera valin. Eftir ballið fór ég aðeins heim til einna stelpu og við höfðum það bara kosy, töluðum um kvoldið og svona ekkert merkilegt.
Svo Sunnudagsmorgun náði ég að sofa út loksins. Svo eru líklegast mun fleiri myndir á facebook og svona. Er núna að blogga, á eftir að læra og svo planið að kíkja í rækt eftir það allt saman! Vonandi var eitthvað varið í þetta blogg. Sakna ykkar allra í tætlur vonandi er lífið líka gott á Íslandi!



Á ballinu





1 comment:

  1. Eins og venjulega, æðislegt blogg. Þig fer örugglega bráðum að dreyma a amerísku..
    kveðja af klakanum.

    ReplyDelete